Aðalskipulag
SSK_Grafik_355
  • Aðalskipulag er skipulagsáætlun sem nær til alls lands sveitarfélags
  • Í aðalskipulagi birtist stefna sveitarstjórnar um landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi, umhverfismál og þróun byggðar til a.m.k. 12 ára
  • Í aðalskipulagi eru forsendur fyrir gerð deiliskipulags
  • Aðalskipulag er háð samþykki sveitarstjórnar og staðfestingu umhverfisráðherra

 

Sveitarstjórn ber ábyrgð á gerð og endurskoðun aðalskipulags. Gerð aðalskipulags á að byggja á markmiðum skipulags- og byggingarlaga auk þess sem samræmis skal gætt við aðalskipulag aðliggjandi sveitarfélaga, fyrirliggjandi svæðisskipulag og stefnu stjórnvalda í málaflokkum aðalskipulags. Við mótun tillögu skal jafnhliða lagt mat á umhverfisáhrif stefnu. Leitast skal við að marka stefnu og áherslur í aðalskipulagi í sem mestri samvinnu við íbúa og aðra hagsmunaaðila.

Að afloknum sveitarstjórnarkosningum skal sveitarstjórn taka til umfjöllunar og ákveða hvort ástæða sé til að endurskoða gildandi aðalskipulag. Við slíka endurskoðun skal hugað að samfélagsþróun undanfarinna 4 ára og til næstu framtíðar auk þess að skoða hvernig framfylgd aðalskipulagsins hefur gengið eftir. Nýtt aðalskipulag og breytingar á því er háð staðfestingu umhverfisráðherra.


 

Nánari upplýsingar um gerð og málsmeðferð aðalskipulags má nálgast með eftirfarandi krækjum:

Ferli aðalskipulags PDF 2,5Mb
Leiðbeiningar um aðalskipulag
Skipulags- og byggingarlög

Skipulagsreglugerð
Lög um umhverfismat áætlana


 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica