Deiliskipulag er nánari útfærsla á aðalskipulagi fyrir afmarkað svæði eða götureit.
- Í deiliskipulagi er kveðið á um byggðamynstur, húsagerðir, landmótun, starfsemi, lóðarmörk ofl.
- Deiliskipulag á við í þéttbýli og dreifbýli, fyrir stór og smá hverfi, gatnamannvirki, hafnarmannvirki, útivistarsvæði, hljóðmanir, snjóflóðavarnargarða ofl.
- Í deiliskipulagi eru skipulagsskilmálar fyrir útgáfu byggingar- og framkvæmdaleyfa.
Sveitarstjórn ber ábyrgð á og annast gerð deiliskipulags. Deiliskiplag er nánari útfærsla á stefnu og ákvæðum aðalskipulags og skal ná til afmarkaðs svæðis eða götureits sem myndar heildstæða einingu. Í deiliskipulagi koma fram skipulagsskilmálar fyrir uppbyggingu og framkvæmdir, s.s. um þéttleika byggðar, húsagerðir, lóðastærðir, lóðamörk, staðsetningu húsa á lóðum, bílastæði og landmótun. Leitast skal við að móta deiliskipulagstillögu í sem mestri samvinnu við íbúa og aðra hagsmunaaðila.
Landeiganda eða framkvæmdaraðila er heimilt, á sinn kostnað, að gera tillögu að deiliskipulagi til sveitarstjórnar. Með samþykkt slíkrar tillögu gerir sveitarstjórn deiliskipulagið að sínu og ber ábyrgð á framfylgd þess.
Á Skipulagsstofnun eru varðveitt eintök af öllum deiliskipulagsáætlunum sem stofnunin hefur fengið til varðveislu frá sveitarfélögunum. Unnið er að því að gera þessar skipulagsáætlanir aðgengilegar í gegnum Skipulagsvefsjá á heimsíðu stofnunarinnar. Með tímanum verður hægt að nálgast allar skipulagsáætlanir sem hafa öðlast gildi samkvæmt skipulags- og byggingarlögum frá 1997 í Skipulagsvefsjánni. Nánari upplýsingar um einstaka deiliskipulagsáætlanir veitir viðkomandi sveitarfélag.
Nánari upplýsingar má nálgast með eftirfarandi krækjum:
Ferli deiliskipulags PDF 2Mb
Leiðbeiningar um deiliskipulag
Skipulags- og byggingarlög
Skipulagsreglugerð
Lög um umhverfismat áætlana
